Nýjar hugleiðingar Huldu
02.01.2009 18:05:19 / hulda68

Árið er liðið....

Jæja, rólegustu áramót sem ég hef upplifað liðin. 
Vorum bara heima, borðuðum kjúlla og horfðum á áramótaskaupið, og svo að sjálfsögðu útum gluggann á alla geðveikina hér í Reykjavík.
Forsagan að þessu er sú að litla snúllan okkar var orðin veik á mánudaginn svo við drifum okkur í bæinn (vorum í nesinu hjá gömlu og gamla) og kíktum við á Barnaspítalanum, líklegast RS-vírus og fékk hún adrenalínpúst á deildinni og svo að fara heim. Við ákváðum að vera bara í bænum yfir áramótin útaf snúllunni, annars var búið að bjóða okkur í mat í nesinu og var planið að vera þar fram að helgi. 

Viðburðaríkt ár liðið: Suðurlandsskjálfti og ísbirnir, ólétta og uppsagnir í vinnunni, brúðkaup og fæðing prinsessunnar, búferlaflutningar og ferðalög. Svona fljótt yfir farið... jú og að sjálfsögðu KREPPA.
Verður bara spennandi að sjá hvað nýtt ár hefur uppá að bjóða. Byrjar strax því ég á afmæli í dag... tuttugu og tíu (besta afmæliskveðjan hingað til), komin á fertugsaldurinn (versta afmæliskveðjan og getur ekki versnað) og að sjálfsögðu kom sú kveðja frá gamla settinu, sögðu reyndar að það væri verra að litla barnið þeirra væri komið á fertugsaldurinn. 
Veit ekki hvort ég ætla að halda veislu,  fæ alveg ágætis veislu þegar við skírum hana Magdalenu en við stefnum á það núna í janúar.

Jæja, nóg í bili. Vona að maður verði öflugri í skrifunum á nýju ári.

GLEÐILEGT NÝTT Á:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2008 15:46:17 / hulda68

Og koma svo...

Vá, hvað það er langt síðan ég bloggaði síðast. Var ekki viss með aðgangsorðin en júbb, ég mundi þau rétt.

Já, já það er allt fínt að frétta. Stóri dagur nr. 1 liðinn og núna bíður maður bara eftir stóra degi nr. 2.
Stóri dagur nr. 1 var þann 16. ágúst síðastliðinn. Brúðkaupið var alveg yndislegt. Miklu betra en ég átti von á og þakka ég það frábærum ættingjum og vinum sem lögðu sig öll fram við að gera þennan dag eftirminnilegan. Athöfnin fór fram í Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og gaf sr. Eðvarð Ingólfsson okkur saman. Veislan var svo í félagsheimilinu Fannahlíð sem er undir Akrafjalli. Allt bara meiriháttar.

Svo er það stóri dagur nr. 2  sem er settur þann 9. nóvember. Róðurinn farinn að þyngjast en maður er farinn að anda léttar úrþví búið er að semja við ljósmæður. Fann aðeins fyrir verkfallinu þar sem ég átti tíma í mæðraskoðun einn verkfallsdaginn en sem betur fer fékk ég annan tíma aðeins viku seinna... sem var í gær. Það gengur bara allt ljómandi hjá mér, fínn blóðþrýstingur, góðar hreyfingar hjá barninu og það búið að skorða sig. Er reyndar komin með kviðslit svona 5 cm. fyrir ofan nafla, bara fylgjast með því og ef eitthvað fer að gúbbast þarna út, þá þarf ég að fara til læknis til að koma því inn aftur8| Jú, jú og svo er grindin farin að segja til sín. Búin að vera nokkuð slæm núna í nokkra daga. Við erum reyndar að flytja búferlum svo það er kannski ekki skrítið að maður er slæmur. En já, meðgangan gengur semsagt bara vel með alla sína kosti og galla og tíminn bara flýgur.


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 16:08:22 / hulda68

Húbba ba...

Já, já og alltaf fjölgar í fjölskyldunni.

Í gærmorgun eignaðist hún Loppa okkar sex stykki kettlinga. Þeir hefðu alveg mátt vera færri svona í fyrsta goti, ef það má kalla það það því í haust gaut hún þrem kettlingum sem voru ekki alveg full skapaðir... ætli það hafi ekki verið fyrsta got8|
En já, semsagt eftir ca. 2 mánuði vilja allir eignast þessa kettlinga... er það ekki annars;)




» 2 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 18:11:09 / hulda68

Geminí

Ef það er ekki kominn tími til að blogga þá veit ég ekki hvað...8|

Brúðkaups-skipulagningin gengur nú svona og svona. Maður er nú kannski ekki alveg komin í gírinn fyrir stóra daginn, held maður hrökkvi ekki í gang fyrr en á síðustu metrunum. Er nú búin að panta kirkjuna og veislusalinn svo aðalatriðin eru niðurnjörfuð. Hef komist að því að mesta vandamálið er að velja boðskortin, úff púff. Ætla að reyna að klára það í næstu viku:haha:
Keypti alveg óvart kjólinn um daginn... málið er að í dag er ég komin 16 vikur á leið og finnst mér bumban stækka óhemju hratt svo nú er bara að krossleggja fingur og vona að ég verði ekki orðin of sver fyrir kjólinn þegar stóri dagurinn rennur loks upp.
Já, hí hí... ég er ólétt. Stóri dagur nr. 2 er settur 9. nóvember. Hingað til hefur allt gengið ljómandi. Mikið stress og svona byrjunarörðugleikar voru fyrstu þrjá mánuðina (svolítið brennd eftir að hafa misst í fyrra) en nú er bara allt á réttri leið. Og það verður bara þannig;)



» 1 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 20:21:02 / hulda68

Fídelí famm

Kannski maður hripi niður nokkur orð.

Annars er nú barasta við þetta sama, vinna, borða, sofa osfrv.

Skellti mér annars á brúðkaupssýninguna í Blómaval í gær og varð bara fyrir vonbrigðum. Allt bara einhvernvegin í kaos, básarnir ekki nógu áberandi og bara ekkert úrval til að skoða. Allavega þá fékk ég ekkert útúr þessari sýningu sem hjálpar mér í mínum undirbúningi. Miklu betra bara að sitja hérna við tölvuna og "sörfa" netið. Jább, ég er að fara að gifta mig í sumar:haha: Annars er þetta nú allt svona að komast í skorður. Nú þarf maður bara að fara að framkvæma hlutina, tala við prestinn og panta kirkjuna, skoða kjóla og spá í gjafalistanum. Er búin að panta veislusalinn svo þar er kominn einn hlutur;)

Já, já svona er lífið... en mikið svakalega hlakka ég til:d


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 19:41:02 / hulda68

Elibí delibí

Jæææææææjaaaaaa!

Kannski löngu tímabært að skrabla saman nokkrum orðum hér á síðuna, en ég ætla nú ekki að vera að dæma um það.

Já... og gleðilegt nýtt ár.

Bara mest lítið að frétta hérna. Kannski helst að litla frænka mín, hún Kristín Lára... jú og Valdi auðvitað, eignuðust lítinn prins þann 20. janúar og er búið að nefna hann Sigurgeir. Algjör rúsínudrengur. Svo er bara verið að bíða eftir því að Sirrý systir komi nú með stelpuna, spái því að hún komi um helgina;)

Hjá mér er bara vinna og pestir. Búin að vera algjör aumingi núna eftir áramótin, lá í síðustu viku í flensu og er ekkert nema hor þessa dagana. Annars er "partý" núna á föstudaginn hjá nýju sameinuðu fyrirtæki ANS. Jább, er víst ekki lengur starfsmaður hjá Sólfelli heldur starfa ég hjá Ans... verð að fara að venjast því, sagði síðast í dag að ég væri að vinna hjá Sólfelli8|

Annars eru nú ýmis plön í gangi... brúðkaup í ágúst og jafnvel búferlaflutningar svona með haustinu. Á allt eftir að koma í ljós þegar nær dregur8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 19:24:53 / hulda68

Domo, Damm

Jamm og já...

Mest lítið spennandi að gerast hjá mér, alveg nóg að gera... bara ekki spennandi.

Kannski hápunkturinn næstu daga það að ég skráði mig í magadans sem byrjar á þriðjudaginn. Annars er maður líka aðeins farinn að sprikla í badmintoninu aftur, var búin að gleyma því hvað það er gaman. Jú, og kvöldgöngurnar okkar vinkvennanna, klikkar ekki.

Það má glöggt sjá að maður er lítið heima hjá sér svona í miðri viku enda allt í drasli. Ótrúlegt hvað smá framkvæmdir skilja eftir sig mikið rusl og drasl. Helgarnar fara svo í að taka til og rusla út aftur með meiri framkvæmdum.

Svo er það bara Danmörk síðustu helgina í Nóvember. Hin árlega Sólfells-ferð. Í fyrra var farið til London og á tónleika með Rolling Stones en í ár er það Köben. Fáum að kynnast Dönsku jólahlaðborði á einhverri sveitarkrá og svo verður Tívolíið víst komið í jólabúning. Ætli flestar jólagjafirnar verði ekki danskar í ár;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 17:40:29 / hulda68

Cocomo

Jæja. Er ekki fínt að ALLAVEGA hafa færslu mánaðarlega.

Fengum fína helgi um daginn í vinnu heima fyrir. Búið að stilla upp neðri skápum og hluta af efri skápum í eldhúsinnréttingu. Uppþvottavélin komin á sinn stað og við farin að nota nýja helluborðið. Gunni kláraði nánast geymsluna, búið að mála og flísaleggja svo við gátum komið frystinum í gagnið áður en við fengum kindurnar fyrir veturinn. Þá á bara eftir að klæða loftið þar:D

Ég pantaði borðplötuna á eldhúsinnréttinguna í gær svo nú þarf ég að fara að skoða eldhúsvaska og finna mér tíma til að klára hurðir og skúffufronta. Hlýt að fara að fá helgi í það á næstunni.

Loksins búið að gera innkeyrsluna góða, er ekki lengur hætta á að lenda í kviksyndi þegar maður stígur útúr bílnum (óðum moldardrullu uppað hnjám). Létum jarðvegsskipta fyrir bílskúrnum í leiðinni svo nú má bara slá upp fyrir sökkli og panta einingarnar;) Held samt að það verði ekkert gert í þeim málum fyrr en með vorinu. Væri annars fínt að losna við Endurohjólið úr geymslunni8|

Annars er bara allt fínt að frétta. Nóg að gera í vinnunni og alltaf hægt að dunda sér heimafyrir. Getum sagt að við séum ekkert að fara okkur óðslega þarna heima, þetta kemur allt með kalda vatninu.


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 19:41:11 / hulda68

Jáhámm

Jæja, ef ekki er kominn tími fyrir nýtt blogg þá veit ég ekki hvað.

Það er kominn svona vetrarfílíngur í mann, maður farinn að huga að haustverkum heimafyrir. Taka til í garðinum áður en fer að frjósa og snjóa, erum svo aðeins farin að dúlla okkur í geymslunni. Þar á eftir að ulla smá hluta og klæða með gipsi, spartla, mála, klæða í loftið og flísaleggja. Og svo er það blessaða eldhúsinnréttingin:S Ég meina, þegar maður hefur smá eldunaraðstöðu (tvær hellur... á líka bara tvo potta:|), uppþvottavél útá miðju gólfi og vaskinn inná baði... maður þarf ekki meira. Nei, nei ég ætla nú að reyna að klára hana fyrir jól... bara spurning hvaða ár:lol: Úfff, slakur þessi.

Já, já.

Eitt sem ég verð að nefna. Ég semsagt fór til USA og Canada núna í byrjun ágúst. Tíu daga ferð í 36 manna hóp. Alveg meiriháttar ferð. Var svona hálfgert ættarmót þar sem The Red Hill Gang var á ferð (Rauðhylltingar). Fórum að heimsækja ættmenni, þ.e. afkomendur bróður hans afa (pabba hans pabba). Það var flogið til Minneapolis og brunað þaðan norður til Fargo og þar gist eina nótt. Þá var brunað enn norðar og yfir landamærin til Canada. Winnipeg var bækistöð okkar þar næstu 6 nætur. Við höfðum til umráða eitt stykki rútu með bílstjóra og svo leiðsögumann. Skoðuðum meðal annars Heclu eyju og eyddum góðum tíma í Gimli þar sem þessir ættingjar okkar eiga sumarhús sem heitir einmitt Rauðholt. Garðpartý þar og að sjálfsögðu Íslendingadagurinn. Í bakaleiðinni var gist eina nótt í Grand Forks (aðeins norðar en Fargo) og svo tvær nætur í Minneapolis... svona svo við gætum nú allavega átt einn dag í MALL OF AMERICA. Og þangað ætla ég sko pottþétt aftur. Sáum brúna sem hrundi og fengum fínan rúnt um miðborgir Minneapolis og Saint Paul.

Nú er maður búinn að fara eina svona ferð þarna vestureftir svo næst þá verður maður bara á sínum eigin vegum:haha:

Og svo á næstunni... Kaupmannahöfn í nóvember, jólin og áramót.....


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 20:04:44 / hulda68

Jæja!

Löööönguuu orðið tímabært fyrir nýja færslu.

Kannski er megin ástæða þess að svona langur tími líði á milli færsla sú að þar sem við búum núna er ekki komin nettenging. Jább, við erum búin að selja í Kópavogi og vinnum núna í því að koma okkur fyrir á Hvanneyri. Alltaf nóg að gera, eiginlega það mikið að gera að ég hef ekki tíma til að byrja í vinnunni. Ætla að byrja á föstudaginn: föstudagur til fjár, svo ég hlýt að verða rík;)

Já, já... okkur líður alveg ágætlega á Hvanneyri þó svo að skítafíla og hungur séu ríkjandi þar á bæ. Er þó búin að kaupa sturtuklefann og búin að koma upp bráðabyrgðar eldunaraðstöðu svo við þurfum ekki að "skreppa" í nesið til að þvo okkur og næra hjá gamla settinu. Smádýrin una sér einnig vel. Fáni loksins kominn heim og sveitakötturinn kominn upp í henni Loppu okkar. Hún er komin með þrjár bjöllur um hálsinn og verður spennandi að sjá hvort ekki fari að hægja á veiðinni hjá henni. Litla saklausa kisan okkar er ekki svo saklaus lengur:(

Uppá síðkastið... skrapp til Spánar í tíu daga sem var alltof stuttur tími því ég var loksins farin að venjast hitanum þegar ég fór heim. Tvö ættarmót í bland við flutningar, smíði á afgreiðsluborði fyrir hársnyrtistofu hér í bæ (þ.e. í nesinu) og fín vinnuhelgi vestur í Kirkjubóli.

Á næstunni... brúðkaup næstu tvær helgar og bæði svona "sofa í tjaldi brúðkaup". Svo fáum við eina helgi frí svo við getum nú unnið eins og brjálæðingar heima, og svo erum við bara farin til Kanada í tíu daga rútuferð með fullt af skrítnu fólki sem eru víst ættmenni mín8|

Ekki er nú meira planað það árið nema kannski ferð vestur í Kirkjuból í september.


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 14:12:50 / hulda68

Ahhhhh:D

Jæja, þá er maður orðinn löggiltur húsgagnasmiður. Kláraði sveinsprófið með ágætum, hefði alveg geta gert betur en stressið og pirringurinn í lokin settu smá strik í reikninginn. Endaði nú samt með 8 í lokaeinkunn. "Útskriftin" er svo í haust þegar ég fæ skjalið í hendurnar.

Það gengur ekkert að selja íbúðina okkar. Kannski ágætt að losna við að vera að flytja í miðju sveinsprófi en núna mætti það alveg fara að seljast. Getum ekki beðið eftir því að fullflytja í sveitina.

Skellti mér í kvennareiðina í gær. Úff og meira úff. Kom í ljós að ég er í ENGU formi fyrir brokkgenga klára. Held ég sé marin á rassinum8|  En þvílíkt fjör að komast svona í góðan reiðtúr. Næst fæ ég lánaðan töltara, kemur ekki annað til greina. Kannski maður verði bara búin að ná töltinu í Prinsinum. Fann þegar hann tölti hjá mér.....hvílíkur munur, ég skal, ég skal;)

Jább, svo ætla ég að skella mér til Spánar núna á fimmtudaginn. 10 dagar í sól og sumaryl8) Var bara að enda við að bóka farið á netinu. Sirrý systir og family eru úti núna og buðu mér að koma bara og slaka á eftir allt saman. Úje, þetta verður sætt. Er bara að fara ein (sem er súrt) en Gunna er sama því þá getur hann bara unnið eins og mófó án þess að hafa einhverja áhyggjur af mér.

Amm. Nóg af fréttum í bili:P

 

Gleðilegan sjómannadag. 


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 17:14:38 / hulda68

Jább.

Jæja, er ekki kominn tími á smá blogg. Fullt af fólki búið að koma og skoða. Held ég hafi aldrei þurft að þrífa svona....tja, reglulega. Alltaf að passa að allt sé voða fínt og flott. Nú er bara að bíða og vona að einhverjir hafi áhuga á að kaupa;) Jább, og skriflegi hlutinn í sveinsprófinu búinn. Tók hann í morgun og hringdi áðan varðandi niðurstöðurnar. Flaug í gegn, og það flott að ég þarf í rauninni ekki að sjá prófið, það væri ekkert að sjá. Gunni fer á eftir að sækja efnislistann og teikningarnar af borðinu sem ég á að smíða, er svona hornsófaborð. Ég sé sjálf um að kaupa efnið í borðið og þar af leiðandi fæ ég að velja hvernig það lítur út. Ætla að hafa það úr eik, uppáhalds viðurinn minn:) Annars ligg ég þessa stundina heima, er lasin:( Bara ég að vakna með hita daginn sem ég fer í sveinspróf. Vona bara að þetta verði ekkert meira, má ekki við því.

» 7 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 22:02:57 / hulda68

Típíst (er þetta íslenskt orð eða....?)

Fyrsta parið kom í kvöld að skoða íbúðina. Við búin að gera voða fínt og flott hjá okkur og jú, þetta byrjaði allt vel. "og svo er útsýnið yfir dalinn svona....." og hvað haldið þið. Þessi líka fíni sinubruni niðrí dal. Úff, maður fékk bara flash back síðan úr sinubrunanum á Mýrunum í fyrra. Var samt svolítið skrítið að standa bara þarna eins og allri hinir og gera ekki neitt. Í sveitinni koma allir saman og hjálpast að við að slökkva eldinn en hér í stórborginni bíður maður bara sallarólegur eftir því að slökkviliðið komi og ráði niðurlögum eldsins. Verður annars svolítið spennandi að sjá hvort parinu hafi eitthvað litist á þetta allt saman;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 15:05:27 / hulda68

Jæja, jæja.

Jæja, þá fer vonandi að sjá fyrir endann á þessu öllu saman. Íbúðin í Kópavogi komin á sölu svo maður þarf að fara að huga að flutningi í sveitina. Þá er bara að klára eldhúsinnréttinguna og kaupa sturtu. Næsta mál er svo sveinsprófið sem ég er að fara í núna í maí, úff barasta... er ekkert smá stressuð. Horfi á bjartari tíma þegar júní rennur í garð. Vonandi þá búin að selja í Kópavogi og sveinsprófið yfirstaðið með glans.... er það ekki;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 17:07:15 / hulda68

Úff bara.

Varð rétt í þessu vitni að ótrúlegum hlut. Var að tala í símann hér heima og eins og svo oft áður þá stóð ég við gluggan sem vísar að Fossvogsdalnum, og hvað haldið þið að ég hafi séð. Þessi líka stærðar fálki að ráðast á stokkönd. Nema hvað að þegar hann er loksins komin með öndina í klærnar koma tveir hrafnar og ráðast á hann. Þeir fljúgast á í svolítinn tíma og þrátt fyrir aðra tilraun til að komast í öndina gekk þetta bara ekki. Hrafnarnir komu, sáu og sigruðu og ég sé ekki betur en að öndin syndi hér í skurðinum fyrir neðan með sinni spúsu. Ótrúlegt, ótrúlegt. Annars er það að frétta að við erum búin að sofa heilar tvær nætur á Hvanneyrinni. Er bara æðislegt. Þessa helgi ætlum við að standsetja íbúðina hér í Kópavogi og gera hana söluhæfa...hmmm, spurning hvort maðu eigi að nefna þetta með fálkann... svona eftir á að hyggja þá hef ég ekki séð kettlinginn síðan ég kom heim:I

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6